miðvikudagur, október 26, 2011

Peningar, völd og kynlíf

Sem fyrr þá er ég að kynna mér apana og þá sérstaklega simpansana. En þeir deila 98% af erfðamengi homo sapiens og eru okkar nánustu erfðafræðilegir ættingjar. Í samfélagi simpansa er að finna alfakarl (en hér er ég ekki að tala um mína uppáhaldsapa sem eru simpansa-bónóbó-prímatar). Þetta fyrirkomulag er velþekkt hjá górillum. Alfakarlinn hjá simpönsum er líkamlega sterkur, áræðinn og kappsamari en kynbræður hans. Fyrir vikið fær hann að r**a mest af öpunum. Það sem hann fær líka er pungstrok. En aðrir kynbræður hans nálgast alfakarlinn og strjúka punginn hans til merkis um lotningu. Ég velti því fyrir mér hvort homo sapiens hafi einhvern tíman stundað þetta í denn. Eða þá hvort þessi hegðun hafi þróast út frá týnda hlekknum. Til gamans má velta því fyrir sér hvort svipuð hómóerótísk athæfi séu ekki líka stunduð í viðskiptaheiminum á meðal karlmanna.

Prímatinn sem sinnir alfadjobbinu fær ekki mikið meira að launum en það að fá meiri mök og meira pungstrok en aðrir karlapar í samfélaginu. Kannski er það þó ígildi peninganna í samfélagi homo sapiens.
Svo hefur hann líka mest um hluti að segja í samfélagi sínu. Þá virðist það mér alfaapinn vera mótiveraður af sömu hvötum og margir sem hella sig út í stjórnmálin.

0 athugasemd(ir):

Sendu inn athugasemd