fimmtudagur, júlí 16, 2009

Náttúrulegur stillir

Í gær synti ég kílómetra á 23 mín. og 5 sek. Það var ekki gull eða silfur en allt í lagi. Ég fékk hvað eftir annað sjó undir gleraugun og þurfti margoft að stoppa til að tæma. Ég synti þetta hálfblindur skriðsund og gleypti slatta af sjó. Eftir viku eða tvær skilst mér að synt verði fram og til baka til Viðeyjar en það eru tæpir 2 kílómetrar. Ég hef fullan hug á að skella mér í Nauthólsvíkina í millitíðinni og synda yfir hana og til baka. Það eru 12 til 13 hundruð metrar segir Benni bakari. Milli þess að synda í sjónum skelli ég mér í leikfimi. Í dag hljóp ég á bretti í 15 mínútur 3,5 kílómetra. Ég tók eftir það 20 armhýfur. Svo gerði ég nokkrar bekkpressur. Ég tók hundrað magakviður með abflexer. Svo sippaði ég í 4 mínútur og eftir það gerði ég fleiri bekkpressur. Ég gerði 50 crunch með áherslu á transversus abdominis sem mér fannst þurfa pressu. Svo gerði ég snöggar 40 armbeygjur og með nokkrum bekkpressum. Ég gerði eftir það fleiri magakviður þar sem ég vil eiga fallegan rectus abdominis. Ég sippaði í þrjár mínútur og náði tæpum 500 hoppum. Eftir fleiri magakviður gerði ég nokkrar armhýfur og bekkpressur. Ég er að reyna að keyra út líkama minn og losa eitthvað endorfín úr heilanum mínum.

2 athugasemd(ir):

Lissy sagði...

You crack me up.

Valur Þór sagði...

Thank you :)

Sendu inn athugasemd