Alveg
Nú er allt gott. Ég er kominn með nýjan GSM síma sem er þessi 3G. Ég íhugaði eitt andartak að hringja í Útvarp Sögu og segja Arnþrúði Karlsdóttur, Pétri Gunnlaugssyni eða Sigurði G. Tómassyni þessi tíðindi. Þá get ég núna þrammað um borgina og skoðað facebook hvar sem símasamband næst. Ég get uppfært stöðuna og haldið mér inni í netsamfélaginu þrátt fyrir að vera á ferð og flugi. En ég get líka sent inn stutta bloggfærslu ef ég nenni að pikka hana inn.
Ekki það að allt verði samt alltaf gott. Ég hef lengi aðhyllst þá ósönnuðu kenningu að GSM símar valdi krabbameini. En það er kannski eitthvað sem mætti brydda upp á ef maður vildi hringja í Útvarp Sögu til að ræða um nýjan síma sinn. Það má ekki ræða þetta ESB og ICESAVE endalaust. Ég er alveg að verða alveg.

0 athugasemd(ir):
Sendu inn athugasemd