fimmtudagur, júní 25, 2009

Sárþjáður og slímugur

Nú hefur annar páfagaukur minn átt það til að þekja sjálfan sig með slími. Ég veit ekki hvernig hann fer að þessu. Hann hefur gert þetta örsjaldan eða fjóru sinnum og ég hef ekki enn séð hann framkvæma þennan gjörning. Lætur hann hinn páfagaukinn gubba á sig? Gubbar hann á spegilinn og nuddar sig síðan uppúr því? Þetta er ráðgáta sem ég fæ ekki í botn. En eitt vill páfagaukur minn ekki gera þegar hann er svona alslímugur og það er að leika sér. Það sést að hann er ekki eins höfðingjalegur og aðra daga. Tvennt á þessu myndbandi er að hann kúgast sem hann stundar ekki venjulega. Einnig sést hann hjúfra sig upp að mér og þá skilja þetta slím eftir á hálsinum. Ég lét það náttúrulega eftir mér að vera mjög caring. video

0 athugasemd(ir):

Sendu inn athugasemd