Sé enga ástæðu til að láta móðga mig
Ég var búinn að lofa sjálfum mér að fara ekki í Kolaportið. Mér finnst gaman að kaupa þar söluvarning og hef eytt dágóðum summum þar síðustu misseri. En nú eftir að harðnað hefur í dalnum hef ég haldið mér fjarri Kolaportinu. Ég ráfaði hins vegar þangað inn í dag og tók meðal annars með mér tvær plötur með Prince en fann líka elstu Star Trek þættina. Þetta var syrpa eitt af þremur sem ég fékk á 4500, en ég fyrr búinn að líta hýru auga á syrpuna í Nexus þar sem hún var á um 10.000.
Á ég að eyða peningum mínum og tíma í eitthvað annað en Star Trek? Á ég að gera eins og mamma mín segir og fara út á lífið? Ekki vera svona mikill Vulcan og uppstífur. Er peningum mínum betur varið þannig? Það held ég ekki vegna þess að vegurinn sem Vulcanar ganga er göfugur lífstíll.
Sjálfsmynd: ég sem Vulcan. Mér finnst ég fáránlega líkur Leonard Nimoy. Það er eins og við séum tvífarar.

2 athugasemd(ir):
Spock totally needed Captain Kirk though, or he would just be annoying.
Of course, he would be very boring. He needs Kirk to get the best out of himself. And the same goes for Kirk needing Spock. It's a beautiful friendship.
Sendu inn athugasemd