föstudagur, júní 05, 2009

Eat me nerd

Í gær fór ég í fyrsta skipti í búðina Nexus á Hverfisgötu. Mér þótti nú dálítið til búðarinnar koma. Þarna voru barnaleikföng sem voru ekki sérstaklega hugsuð til sölu fyrir börn, heldur meira svona fyrir menn með arrested development. Ég hafði þó ekki nægan áhuga á að eiga plastgert Hulk-líkneski sem þarf tvö AA-batterí en það var helst eitthvað þannig sem var þarna í boði. Annars fannst mér úrvalið af teiknimyndasögum tilkomumikið. Nú er það einmitt þannig að ég er mjög heftur í þroska. Ég varð seint kynþroska - og það þurfti þá með aðstoð læknavísindanna - að svo fór að ég féll niður í greindarvísitölu. En sálfræðirannsóknir sýna að menn haldnir þessu annmarki falla úr flokknum sem þeir voru til að byrja með og fara einn niður. Fræðimenn eru samt ekki um eitt sáttir því samkvæmt geðlæknisfræðinni er svona þroski álitinn týpískur fyrir einstakling haldinn bældri samkynhneigð. Hvað sem því líður þá eiga teiknimyndasögur vel við menn með athyglisbrest. Mér finnst vel að blanda saman mynd & texta. Ég greip því bók eftir Daniel Clowes, en nafnið hans þekkt ég úr kvikmyndunum Ghost World (2001) og Art School Confidential (2006). Bókin heitir Pussey! og gef ég henni meðmæli mín.

0 athugasemd(ir):

Sendu inn athugasemd