mánudagur, júní 22, 2009

Í morgunsárinu

Nú fer að líða undir lok sumarfrí míns. Í morgun var ég eins og fyrr kominn snemma á fætur og farinn að hlýða á Útvarp Sögu. Svo nota ég tíma minn í að hugsa um hinar ýmsu atburðarásir og þá í ljósi orsakar annars vegar og afleiðingar hins vegar. Þess á milli drekk ég te. Svo fæ ég mér oftast smá blund rétt undir hádegi. Þema sumarfrí míns hefur verið sjálfsræktun. Í miðdeginu hef ég yfirleitt tekið leikfimisæfingar og í framhaldi af því séð um tiltekt. Ég hef fullan hug á að fara í leikfimissal sem ég hef afnot af eftir hádegisblundinn minn. Í gær fór ég í sjósund og tók þar um það bil 200 metra og hef fullan hug á að gera slíkt hið sama á morgun. Einnig hefur mér í sjálfsræktinni gefist tími til að huga að lífsgildum mínum. Hvers kyns mataræði er best fyrir mig? Hver eru áhrif min á umhverfið og samfélagið? Hver eru frumefni mín? Salt? Mold? Ég fæ ekki endanleg svör við þessum spurningum þó þær knýji á mann. Mér er hugsað til meistara minna og vina um leið og ég leita mér andlegrar fróunar.

0 athugasemd(ir):

Sendu inn athugasemd