mánudagur, júní 08, 2009

Gott tré

Ég gæti lifað góðu lífi einn upp í tréi. En þróunarfræðilega höfum við það dálítið í blóðinu að vera í trjám. Mér þætti til dæmis gott að vera uppi í tréi uppá að hafa útsýni fyrir villtum kjötætum sem gætu reynst manni hættulegar. Ef einhver reyndi síðan eitthvað myndi ég dúndra einni kókoshnetu í höfuðið á þeim. Svo myndi ég velja mér tré sem ég teldi að hefði góðar rætur. En í sumum löndum einkennist það að flestöll tréin eru með frekar lélegar rætur. Þá yrði ég væntanlega að flytja úr því landi. Það er ómögulegt að geta ekki fundið sér tré sem bognar ekki þegar maður er rétt farinn að klifra upp í það. Svo er ég líka þeirrar skoðunar að lönd sem hafa ekki tré með góðar rætur eru illa leikin vegna almenns ístöðuleysis sem þar geysar. Því sjaldan er ein báran stök og stundum virðist í þessum löndum sem allt sé á reiki vegna lélegra stoða. Ég þrái að finna mér gott & traust tré þar sem ég get byggt kofa uppi í nokkra tugi metra hæð og átt heima þar einn og sjálfbær. Það er ekki að finna á þessum slóðum.

0 athugasemd(ir):

Sendu inn athugasemd