Göngutúr í Reykjadal
Á meðan heimurinn frétti af dauða Michaels Jacksons síðasta fimmtudag var ég í gönguferð rétt utan Hveragerði í Reykjadal. Þar þrammaði ég um í ýmist súld eða rigningu ásamt nokkrum vinnufélögum. Ég tók einnig nokkrar myndir:Undir lokin böðuðu sig allir í náttúrulegri heitri á sem þar er að finna nema ég. Mér fannst ferðin hafa gengið of hægt og vildi flýta henni meira. En ég vildi með engu móti vera valdur þess að ferðin tefðist meira og varð því að vera í öllu búinn að spretta úr spori á hverri stundu. Eftir á að hyggja hefði ég nú alveg geta baðað mig í þessari blessuðu á.

0 athugasemd(ir):
Sendu inn athugasemd