þriðjudagur, júní 23, 2009

Anþem

Alltaf skal mér finnast hún Jóhanna forsætisráðherra minn Sigurðardóttir alveg yndisleg. Hún stappar í manni stálið og hughreystir. Fólk í samfélaginu hefur nú sem aldrei fyrr látið reiði sína fara með sig í gönur. Margir sjá ekki lengur. Margir eru orðnir blindir. Sumir vilja ekki sjá. Menn keyra niður hús og lögreglumenn. Margir eru líklega að búa til mólotov-kokteila heima hjá sér og safna stórum gróthnullungum og stálrörum. En Jóhanna í þessu umsátursástandi er pollróleg og handviss um í hvaða átt skal stefna. Ekki grunar maður hana um græsku ólíkt öðrum gráðugum stjórnmálamönnum. Svo ég tali nú ekki um lýðskrumara eins og þessi litli gargandi með silfurskeiðina Svikmundur Davíð í Framsókn. Nei, Jóhanna stendur fyrir önnur lífsgildi. Ástandið er ekki alslæmt þar sem við erum með þá hæfustu í stól forsætisráðherra.

0 athugasemd(ir):

Sendu inn athugasemd