Hvar er mín sígaunakona?
5. júlí síðastliðinn sá ég hinn eina sanna Leonard Cohen í Kaupmannahöfn. Nú er kominn út diskur með tónleikum frá 17. júlí síðastliðnum. En þá var hann kominn með nákvæmlega sömu sýningu til London. Mér fannst einn af hápunktunum kvöldsins í Köben vera þegar hinn eirðalausi sígaunastrákur söng um sinn týnda helming. Lagið The Gypsy's Wife var guðdómlega fallegt en þó með ákveðnum trega sem kallaði fram tár. Enda fjallar lagið um skilnað og heim sem er glundroði.

0 athugasemd(ir):
Sendu inn athugasemd