Eins og armbeygjur hjá eðlu
Ég ber ýmis merki um að vera nörd. Helst ber að nefna að fátt kemst að í mínu lífi en áhugamál mín sem eru mörg skrýtin. Ég eyði til dæmis stórum hluta dagsins í að hlusta á tónlist sem einungis fátæklingar hlustuðu á fyrir meira en hálfri öld*. Ég mætti vera meiri athafnamaður en vegna þess að ég er það ekki leyfi ég mér ekki að eiga bíl því það kostar of mikið. Þrátt fyrir að skora vel á einhverfurófinu og vera svona félagslega heftur er ég hins vegar harðákveðinn sem aldrei fyrr í að vinna mér til frægðar og frama. Ég ætla að gera það sem íþróttamaður. Ég ætla að vera duglegur í sjósundi og þess á milli dvelja í leikfimissal. Svo mun ég að lokum gera einhvern gjörning eins og Charles Atlas (maður á myndunum) og þá mun ég líklega eignast kærustu.
*Ég hlusta mikið á Carter-fjölskylduna. Hérna býð ég upp á tvö lög með þeim. Fyrra er um erfitt hlutskipti elskenda í sveitinni. Seinna lagið er eins konar óður til opinberunarbókar Jóhannesar.

0 athugasemd(ir):
Sendu inn athugasemd