Ó vei náttúra
Hér fylgir lag sem ég hef lengi haft á miklar mætur. Það er engu líkt og segir mér meira en ég get tjáð. Þarna eru hugmyndum varpað fram sem eru bæði komplex og abstract. Efniviður lagsins er að mestu tekinn úr annarri og þriðju Mósebók. Þetta er saga gyðingsins sem vildi óska þess að hafa verið eftir í Egyptalandi. En þetta er líka söngur sálarinnar til líkamans. Líkaminn er dæmdur til að vafra um á erlendri grund sem er hin vilta náttúra.

0 athugasemd(ir):
Sendu inn athugasemd