Græni er nýi fuglinn
Í dag rölti ég niður í Mjódd. Ég ákvað að versla mér annan páfagauk í dýrabúðinni þar. Fuglinn er kvenkyn og nú fylgist ég náið með samskiptum fugla minna tveggja. Þetta er spennandi þar sem karlfuglinn hefur verið fjarri öðrum fuglum frá því hann var ungi. Hann er augljóslega nokkuð meira félagsþurfi en kvenfuglinn sem hefur alltaf haft nokkra fugla í félagsskap. Henni finnst ekki mikið til hans koma þó hann sé nokkuð búinn að reyna að stíga í vænginn á henni. Mér finnst þau dálítið vera eins og lúðinn og vinsæla stelpan. Reyndar átti hann aðdáun hennar þegar hann flaug tignarlega um íbúð mína. Þetta er hann vanur að gera einu sinni til þrisvar á dag. Kvenfuglinn hefur væntanlega einungis fengið að blaðka vængi sína í búri. En henni fannst ekki jafnmikið til hans koma þegar hann var kominn aftur í búrið. Ólíkt því þegar ég keypti karlfuglinn keypti ég kvenfuglinn ekki unga. Enda forverinn á heimilinu ekki lengur ungi. Afgreiðsludaman sagði að kvenfuglinn væri sex mánaða til eins árs.
Annars er annar fugl líka á ferð og flugi. Það styttist óðum í að Bob Dylan verði hérna í bænum. Hann er alltaf eitthvað á flakki á þessari strönd sem við köllum jörðin.

2 athugasemd(ir):
Þegar ég las fyrirsögnina gerði ég það í takt við: Blár er nýji hvítur, og hélt að þú værir svona skáldlegur.
Já. Þetta er miklu flottara heldur en græni fuglinn er nýji. Maður slysast oft til þess að vera skáldlegur
I'm a poet, and I know it
hope I don't blow it
Sendu inn athugasemd